Skref 01
Athygli
Næsta skref er að beina athyglinni að þeirri manneskju sem þú velur að vera.
Vitund opnar rými til að sjá hvernig þú birtist í eigin lífi. Athyglin gefur því sem þú velur að næra líf.
Heimspekin
Sjö skref varanlegrar velsældar — vegferð heim í hjartað.
Við sköpum og nærum það sem við veljum að veita athygli. Vegferðin byrjar á því að sjá hvernig við birtumst í eigin lífi og viðurkenna að næsta skref er okkar að velja.
Heimspekin lifnar í iðkuninni: í vali, samskiptum, öndun, hreyfingu og því hvernig við mætum hverjum degi.
Sjö skref varanlegrar velsældar
Skref 01
Næsta skref er að beina athyglinni að þeirri manneskju sem þú velur að vera.
Vitund opnar rými til að sjá hvernig þú birtist í eigin lífi. Athyglin gefur því sem þú velur að næra líf.
Skref 02
Fyrirgefning opnar leiðina að valfærni.
Þegar þú viðurkennir þitt eigið vald verður næsta skref að vali. Ábyrgð verður að heimild til að vera leiðandi í eigin lífi.
Skref 03
Tilgangur er kjölurinn og stafninn.
Hann veitir vegferðinni stefnu og tengir daglegar gjörðir við það sem skiptir þig máli.
Skref 04
Heitbinding er límið.
Hún tengir það sem þú velur við það sem þú iðkar, aftur og aftur. Valið fær líf í því hvernig þú mætir hverjum degi.
Skref 05
Vilji er verknaður.
Framganga birtist í því hvernig þú lifir og í skrefunum sem þú tekur. Viska verður sýnileg í verki.
Skref 06
Þekking verður að visku.
Þekking verður ekki að visku fyrr en hún opinberast í því hvernig við birtumst og þjónum tilverunni.
Skref 07
Þakklæti er lýsing.
Þakklæti lýsir upp það sem er þegar til staðar. Úr fyllingu þess vex örlætið: að gefa áfram.
01
Staldraðu við og sjáðu hvert athyglin fer. Hvað velur þú að næra í dag?
02
Tengdu það sem skiptir þig máli við eina gjörð. Vilji er verknaður.
03
Leyfðu því sem þú iðkar að birtast í samskiptum og þjónustu við aðra.
„Allt sem þú veitir athygli vex og dafnar.“Guðni Gunnarsson