01 · Athygli og valfærni
Að verða leiðandi í eigin lífi. Fyrirgefning opnar leiðina að valfærni.
GlóMotion Academy
Heilsu- og lífsfærniráðgjafanám með Guðna Gunnarssyni og Guðlaugu Pétursdóttur.
Námið byrjar á þinni eigin vegferð. Bækur, vitundarþjálfun, hreyfing, öndun og ráðgjafafærni mynda heilsætta umgjörð þar sem þekking fær að birtast í lífinu.
Það er ekki hlutverk ráðgjafans að hafa lausnirnar. Hlutverkið er að skapa rými þar sem aðrir finna sín eigin svör.

Umgjörð námsins
Nám frá september 2026 til september 2027 sem sameinar netnám, fjórar staðarlotur á Íslandi og starfsþjálfun. Iðkun, ígrundun og samtal tengja heimspekina við það hvernig við birtumst og þjónum.
Námsárið 2026–2027 er hafið. Hafðu samband um þátttöku, næsta hóp og greiðslumöguleika.
GlóMotion Academy · 2026–2027
Námsárið hófst 12. september 2026. Með Guðna Gunnarssyni og Guðlaugu Pétursdóttur.
Námsár frá 12. september 2026 til 4. september 2027. Netnám, vikuleg samtöl og fjórar staðarlotur á Íslandi tengjast verklegri þjálfun. Vitund, heilsuefling og ráðgjafafærni tengjast í daglegri iðkun.
Hafðu samband til að kanna þátttöku eða fá upplýsingar um næsta hóp.
Sjö skref varanlegrar velsældar
Að verða leiðandi í eigin lífi. Fyrirgefning opnar leiðina að valfærni.
Tilgangur veitir stefnu. Heitbinding tengir valið við daglega iðkun.
Vilji er verknaður. Þekking verður að visku þegar hún birtist í lífinu.
Að gefa áfram af fyllingu og skapa rými þar sem aðrir finna sín eigin svör.
Vikulegur taktur byggist á fræðslu, lestri, lifandi samtali, ígrundun og jafningjastarfi. GlóMotion og dagleg öndun tengja námið við reynslu líkamans.
Námið og námsgögnin eru á íslensku. Hafðu samband um tungumál, aðgang að gögnum og þátttökuskilyrði.
2026–2027
| Dagsetningar | Viðfangsefni |
|---|---|
| 12. september 2026 | Skólasetning · 12:30–14:00 |
| 2.–4. október 2026 | Athygli og valfærni |
| 28.–29. nóvember 2026 | Tilgangur og heitbinding |
| 23.–24. janúar 2027 | Framganga og innsæi |
| 17.–18. apríl 2027 | Samþætting, þakklæti og Örlæti |
| 4. september 2027 | Útskrift |
Opnir námskeiðstímar eru á þriðjudögum kl. 19:30–21:00 meðan námskeið stendur yfir. Máttur athyglinnar frá 15. september, Máttur vitundar frá 3. nóvember, Máttur þakklætis frá 5. janúar, Máttur hjartans frá 16. mars og Máttur viljans frá 13. apríl. Tímar miðast við Ísland.
Frá iðkun til þjónustu
Að lokinni síðustu staðarlotu tekur við starfsþjálfun, handleiðsla og samþætting. Hver þátttakandi lýkur að lágmarki 25 ráðgjafaviðtölum undir handleiðslu sem hluta af útskriftarverkefninu.
Í náminu felst einnig einn einkatími með Guðna og aðgangur að GlóMotion heilrækt meðan á náminu stendur. Að útskrift lokinni heldur vegferðin áfram í Meistarahringnum, mánaðarlegu samtali útskrifaðra ráðgjafa.
Raddir samferðafólks
Brot úr birtum umsögnum þátttakenda í ráðgjafanáminu.
“Í tærari vitund um tilfinningar mínar og vilja.”
“ástundun er gulls ígildi”
“Ég hef fengið traust á sjálfri mér”
„Vegferð ráðgjafans lýkur aldrei.“Guðni Gunnarsson